Hátíðarborð Ferm Living

Ferm Living sýnir okkur hvernig þau leggja á borð yfir …
Ferm Living sýnir okkur hvernig þau leggja á borð yfir hátíðarnar. mbl.is/Ferm Living

Það felur í sér mörg ígrunduð smáatriði til að skapa hið fullkomna andrúmsloft við matarborðið – sérstaklega á jólunum. Ferm Living var að gefa frá sér myndband þar sem þeir fara yfir nokkur atriði hvað þetta varðar.

Því verður ekki neitað að matarborðið verður ein aðalstjarnan á aðfangadagskvöld, þegar við höfum dekkað borðið með uppáhalds matarstellinu okkar, skreytingum, kertum og jafnvel fallegum dúk. Allt til að gleðja gestina við borðhaldið.

Í myndbandinu hér fyrir neðan má sjá hvernig danski húsbúnaðarframleiðandinn, gefur okkur tékklistann að fallegu hátíðarborði fyrir þessi jólin.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert