Matarbloggarinn og keramiksnillingurinn Hanna heldur áfram að elda dýrindis mat í sínum sérhönnuðu pottum sem eru algjör snilld. Hér er hún með fiskrétt sem ætti að slá í gegn á hverju heimili.
„Það er alltaf vinsælt að elda eitthvað sem er bæði einfalt og gott. Þessi fiskréttur gerir litlar kröfur en rennur ljúflega niður – eiginlega er hann alveg sérstaklega bragðgóður. Þetta er einn af þeim réttum sem ég bý til í pottunum mínum en það má líka nota annað sem þolir að fara í heitan ofn. Ég elda fiskinn með lokinu á en þannig verður uppgufunin lítil og minna vökvatap en eldunartíminn er aðeins lengri fyrir vikið.
Ath. Eldunartíminn ræðst bæði af þykkt fiskbitanna og hvort rétturinn er eldaður með loki eða ekki. Ef bitarnir eru þykkir þarf að gera ráð fyrir lengri eldunartíma. Hægt er að nota annað grænmeti en ég mæli með hvítkáli – það gefur skemmtilega útkomu.“
Góður og einfaldur fiskréttur með dúndursósu og hvítkáli
Aðferð:
Meðlæti: Ferskt salat og hrísgrjón
- - -
Fylgstu með Matarvefnum á Instagram og Facebook. Endalaus ævintýri, hugmyndir, skemmtilegir leikir og allt það heitasta heita ...
Svo megið þið endilega tagga okkur á Instagram þegar þið eruð að elda eitthvað spennandi @matur.a.mbl