Matarstellið sem þykir það allra fallegasta

Frönsk gæðahönnun í fallegu matarstelli frá Jars.
Frönsk gæðahönnun í fallegu matarstelli frá Jars. Mbl.is/Jars

Fallegt matarstell á borðum er eins og glæsilegur galakjóll á góðri stundu – það verður allt aðeins meira grand og vekur eftirtekt.

Jars er eitt vinælasta matarstell Frakka og á sér langa sögu, því fyrirtækið hefur framleitt borðbúnað frá árinu 1857. Maður að nafni Pierre Jars stofnaði fyrirtækið af mikilli ástríðu fyrir leirlist og góðu handverki  sem hefur erfst áfram yfir í næstu kynslóðir, og er enn í dag vandlega útfært í fjölskyldufyrirtækinu. Jars hugar einnig að umhverfinu, en þeir endurvinna bæði vatn og leirblöndur svo ekkert fari til spillis.

Vörurnar frá Jars sameina ímyndunarafl og glæsileika sem endurspeglast svo vel í vöruúrvalinu þeirra með marglitum skálum og diskum sem gleðja hvert auga. Og það er einmitt í tilteknu matarstelli, þar sem línur og form eru óregluleg og hægt að blanda borðbúnaðinum saman að vild – og skapa þannig sína eigin sögu við borðið. Þetta dásemdarmatarstell fæst nú hér á landi í versluninni Kokku.

Litirnir eru algört sælgæti og má raða saman að vild.
Litirnir eru algört sælgæti og má raða saman að vild. Mbl.is/Jars
Mbl.is/Jars
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert