Bananasplittbollurnar þykja algjört sælgæti

mbl.is/Berglind Hreiðarsdóttir

Netheimar lögðust nærri á hliðina þegar tilkynnt var að ný bragðtegund af Royal-búðingi væri komin í verslanir.

Hér er Berglind Hreiðars á Gotteri.is búin að baka dýrindisbollur þar sem hún notar nýja búðinginn á milli sem hún segir að komi hreint ótrúlega vel út.

„Þessi búðingur passar ótrúlega vel á milli og þarf ég klárlega að prófa að gera eitthvað fleira sniðugt með honum. Ég hef alla tíð elskað bollur með karamellubúðingi frá Royal á milli og byrjaði í raun að borða bollur þannig. Fannst þær aldrei neitt sérstakar þegar ég var krakki en svo þegar ég smakkaði slíka með karamellubúðingi varð ekki aftur snúið og nú ELSKA ég allar tegundir af bollum og hreinlega fæ ekki nóg af því að prófa mig áfram með fyllingu og krem,“ segir Berglind. 

Bananasplittbollur

15 stykki

Gerbollur – uppskrift

  • 2 egg
  • 40 g sykur
  • ½ tsk. salt
  • 2 tsk. kardimommudropar
  • 100 g brætt smjör
  • 630 g hveiti
  • 1 pk. þurrger (11,8 g)
  • 300 ml volgt vatn
  • egg og mjólk til að pensla með

Aðferð:

  1. Setjið krókinn á hrærivélina og hrærið létt saman egg, sykur og salt.
  2. Bætið hveiti, þurrgeri og volgu vatni saman við og hnoðið áfram.
  3. Að lokum fara kardimommudroparnir út í ásamt bræddu smjörinu og hnoðað aðeins til viðbótar.
  4. Deigið er frekar klístrað en best er að reyna að hafa það eins klístrað og þið getið en þó þannig að þið getið náð því úr hrærivélinni, saman í kúlu og fært yfir í stóra skál sem búið er að pensla að innan með smá matarolíu.
  5. Setjið viskastykki yfir og leyfið að hefast í 45 mínútur.
  6. Skiptið þá deiginu niður í 15 hluta og mótið hringlaga bollur. Raðið þeim á bökunarpappír á tvær bökunarplötur, setjið viskastykki aftur yfir og hefið að nýju í 45 mínútur.
  7. Pískið saman egg og smá mjólk og penslið þunnt lag yfir bollurnar.
  8. Bakið síðan við 185°C í 10-13 mínútur eða þar til þær verða fallega gylltar.

Fylling

  • 2 pakkar Royal-bananasplittbúðingur með hvítu súkkulaði
  • 800 ml rjómi
  • 100 g hvítt súkkulaði (saxað smátt)
  1. Þeytið saman þar til rjóminn verður léttþeyttur (varist að þeyta of mikið því rjóminn þykknar enn frekar þegar hann fær aðeins að standa).
  2. Vefjið súkkulaðinu saman við og setjið í sprautupoka og sprautið vænu lagi á milli hverrar bollu og útbúið næst glassúrinn.

Súkkulaðiglassúr og skraut

  • 110 g brætt smjör
  • 210 g flórsykur
  • 2 msk. bökunarkakó
  • 2 tsk. vanilludropar
  • kokteilber (rauð með stöngli)
  • litríkt kökuskraut

Aðfer:

  1. Hrærið saman brætt smjör, flórsykur og bökunarkakó þar til slétt og falleg súkkulaðibráð hefur myndast.
  2. Smyrjið súkkulaðiglassúr á bollurnar og skreytið með kökuskrauti og kirsuberi.
mbl.is/Berglind Hreiðarsdóttir
mbl.is/Berglind Hreiðarsdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert