Bergþór sá um að baka páskakökuna í ár

Ljósmynd/Albert Eiríksson

Meistari huggulegheitanna, sjálfur Albert Eiríksson, er hér með uppskriftina að páskakökunni í ár og ætti hún engan að svíkja frekar en fyrri daginn.

Hefðin hér á bæ er að baka páskatertu. Að þessu sinni er páskatertan gamli góði Dísudraumurinn en í þessari útgáfu er ferskum berjum blandað saman við rjómann. Það var Bergþór minn sem bakaði páskatertuna (eins og oft áður),“ segir Albert. 

Dísudraumur með ferskum berjum

Svamptertubotn
2 egg
70 g sykur
30 g hveiti
35 g kartöflumjöl

Þeytið egg og sykur þar til blandan er hvít. Sigtið hveiti og kartöflumjöl út í og þeytið vel saman. Setjið í tertuform og bakið við 200°C í 5 mínútur, lækkið síðan hitann í 180°C og bakið áfram í sjö mínútur. Hvolfið á tertudisk.

Marengsbotn
3 eggjahvítur
150 g flórsykur

Þeytið saman á fullum styrk í a.m.k. 10 mínútur, svo að hægt sé að hvolfa skálinni án þess að hvíturnar hreyfist.
Bakið við 100°C í 2 klst., opnið ofninn ekki, látið kólna í ofninum.

Krem
3 eggjarauður
4 msk flórsykur
50 g brætt suðusúkkulaði

Þeytið rauður og flórsykur vel saman. Bræðið súkkulaðið, hellið út í og þeytið áfram á meðan.

Rjómi
1/2 lítri rjómi
ber af ýmsu tagi, brómber, hindber, vínber o.s.frv.

Þeytið nú 1/2 lítra af rjóma, blandið nokkrum matskeiðum af honum út í kremið áður en ber eru sett út í rjómann. Smyrjið helmingnum af honum á svampbotninn. Hellið helmingnum af kreminu yfir rjómann og jafnið út með spaða. Setjið marengsbotninn þar ofan á, afganginn af rjómanum yfir hann og síðast afganginn af kreminu.

Skreytið að vild, með berjum og e.t.v. bráðnu súkkulaði, áður en tertan er borin fram. Oftast er rjóma sprautað á hliðarnar á Dísudraumi, en það er líka girnilegt að sjá lögin í tertunni.

Ljósmynd/Albert Eiríksson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert