Bollakökurnar sem sprengja alla skala

Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir

Það er fátt betra en góð bollakaka og þykir vel heppnuð bollakaka eitt það besta sem hægt er að bjóða upp á í mannfögnuðum almennt. Hér erum við með bollakökur sem setja nýtt viðmið í bollakökugerð enda eru þær svo geggjaðar að orð ná ekki yfir það. 

Við erum að tala um löðrandi súkkulaðiköku með kókosbollutoppi. Toppið það!

Það er meistari Berglind Hreiðars sem á heiðurinn af þessari snilld og ef þetta verður ekki bakað á nokkrum heimilum um helgina þá veit ég ekki hvað.

Kókosbollubollakökur

Athugið að gott er að setja pappaform ofan í álform til þess að kökurnar haldi fallegri lögun og auðveldara sé að fylla formin. Í þessari uppskrift má fylla um ¾ af forminu þar sem kremið er mikið og gott að hafa kökuna eins stóra og mögulegt er.

Bollakökur

  • 1 x Betty Crocker Devils Food Cake Mix
  • 4 egg
  • 125 ml matarolía
  • 250 ml vatn
  • 3 msk. bökunarkakó
  • 100 g brætt suðusúkkulaði

Aðferð:

  1. Hitið ofninn í 160°C og takið til bollakökuform.
  2. Hrærið saman egg, olíu og vatn.
  3. Bætið kökudufti og bökunarkakói saman við og hrærið í nokkrar mínútur.
  4. Að lokum fer brædda súkkulaðið í blönduna og henni síðan skipt niður í um 20 bollakökuform.
  5. Kælið kökurnar og útbúið síðan kremið.

Kókosbollukrem

  • 6 eggjahvítur
  • 500 g sykur
  • 100 ml vatn
  • 1 tsk. cream of tartar
  • 1 msk. vanilludropar

Aðferð:

  1. Pískið saman eggjahvítur, sykur, vatn og cream of tartar í skál.
  2. Setjið skálina yfir pott með sjóðandi vatni og hrærið í þar til þið finnið að sykurinn er orðinn uppleystur og blandan orðin volg, færið hana þá yfir í hrærivélarskálina (eða þeytið með handþeytara).
  3. Þeytið á hæsta hraða þar til stífir toppar myndast (10-12 mínútur í hrærivél).
  4. Bætið vanilludropunum saman við í lokin og þeytið í um mínútu til viðbótar.
  5. Setjið kremið í stóran hringlaga sprautustút og sprautið eins ísmunstri ofan á hverja köku (um þrír hringir).
  6. Stingið kökunum í frysti í 15-30 mínútur og dýfið þeim síðan í súkkulaði.

Hjúpur

  • 500 g suðusúkkulaði
  • 3 msk. ljós matarolía

Aðferð:

  1. Bræðið súkkulaði og hrærið matarolíu síðan vel saman við til að þynna aðeins.
  2. Setjið súkkulaðiblönduna í grannt og djúpt ílát (þó þannig að höndin ykkar og kakan komist að).
  3. Sækið eina og eina köku í frystinn og dýfið eins og þið séuð að setja ídýfu á ís.
  4. Haldið á hvolfi á meðan súkkulaðið lekur af og snúið síðan upp og leggið á disk.
  5. Mikilvægt er að geyma kökurnar í kæli þar til þær eru borðaðar.
Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir
Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert