Nýjasta æðið er Betty Crocker-vöfflur

Ljósmynd/Betty Crocker

Hvern hefði grunað að það væri minnsta mál í heimi að búa til Betty Crocker-vöfflur! Það eina sem þarf er kassi af kökumixi og gott vöfflujárn.

Hér gefur að líta vöfflur sem búnar voru til úr brownie-kökumixi og við fullyrðum að þetta eigi eftir að fá ykkur til að líta tilveruna öðrum augum.

Betty Crocker-súkkulaðivöfflur

  • 1 kassi Betty Crocker brownie mix
  • 3 egg
  • 1/4 bolli matarolía

Aðferð:

  1. Toppið með þeyttum rjóma og ferskum berjum. Eða ís ... eða hverju því sem ykkur dettur í hug.
  2. Hitið vöfflujárnið og smyrjið vel ef þarf. Búið til brúnkudeigið samkvæmt leiðbeiningum á umbúðum.
  3. Bakið vöfflurnar eins og um venjulegar vöfflur væri að ræða og takið úr járninu þegar þær eru tilbúnar.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert