Rugl góður heimagerður rabarbaraís

Ljósmynd/Guðrún Ýr Eðvaldsdóttir

Guðrýn Ýr á Döðlum og smjöri á heiðurinn af þessari uppskrift sem þið verðið að prófa enda fátt sem passar betur með veðrinu þessa dagana en gómsætur og svalandi ís.

„Nú er fyrsta uppspretta rabarbarans að skila sér og mér persónulega finnst alltaf mjög gaman að prófa mig áfram með rabarbarann. Það er hægt að leika sér endalaust með hann og að þessu sinni ákvað ég að gera úr honum dýrindis ís,“ segir Guðrún Ýr um ísinn góða.

Rabarbaraís með hvítu súkkulaði og kexmulningi

Rabarbaramauk

  • 400 g rabarbari
  • 50 sykur

Aðferð:

  1. Stillið ofn á 180°c. Skerið rabarbarann gróft niður í eldfast mót og stráið sykri yfir, setjið álpappír yfir og inn í ofn í 20-30 mín.

Kex

  • 75 g smjör
  • 50 g sykur
  • 100 g hveiti

Aðferð:

  1. Setjið hráefnin saman í skál og blandið saman með höndunum.
  2. Setjið deigið á bökunarpappírsklædda ofnplötu. Gerið bara litla bita og dreifið yfir plötuna. Hér þarf enga nákvæmni.
  3. Setjið inn í ofn með rabarbaranum og bakið í u.þ.b. 15 mín.
  4. Takið síðan rabarbarann og kexið út og leyfið að kólna.

Súkkulaði-ganache

  • 50 g hvítt súkkulaði
  • 25 g rjómi

Aðferð:

  1. Súkkulaði og rjómi sett saman í skál inn í örbylgjuofn eða yfir vatnsbaði og brætt saman.
Ís
  • 500 ml rjómi
  • 350 ml niðursoðin mjólk (condensed milk)
  • 2 tsk vanilludropar

Aðferð:

  1. Setjið rjóma, niðursoðna mjólk og vanilludropa saman í hrærivél og hrærið þangað til blandan er léttþeytt, heldur formi en ekki líkt og stífþeyttur rjómi.
  2. Blandið þá rabarbaramaukinu saman við, gott er að skilja 2-3 msk eftir til að setja ofan á ísinn í lokin.

Samsetning

  1. Takið helminginn af ísnum og setjið í form eða box með loki og dreifið vel úr ísnum. Hellið þá súkkulaðinu yfir ísinn og dreifið aðeins úr því. Þá takið þið helminginn af kexinu og brjótið niður í u.þ.b. munnbita og dreifið yfir ísinn.
  2. Þá er restinni af ísnum dreift yfir og kexinu dreift yfir ásamt auka rabarbaramaukinu sem fallegt er að dreifa úr með hníf eða prjóni til að fá smá áferð í ísinn.
  3. Setjið lokið á boxið eða plastfilmu yfir formið og setjið í frysti í minnst 4-6 tíma.
  4. Þegar ísinn er borinn fram er gott að taka hann úr frysti og leyfa honum að þiðna í 20-25 mín.
Ljósmynd/Guðrún Ýr Eðvaldsdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert