Fiskrétturinn sem öll fjölskyldan elskar

Ljósmynd/Gígja S. Guðjónsdóttir

Hér erum við með fiskrétt eins og þeir gerast bestir. Það er Gígja S. Guðjónsdóttir sem á heiðurinn að uppskriftinni sem smellpassar í kvöldmatinn – hvenær sem er.

„Þennan þorskrétt hef ég verið að gera lengi, uppskriftin var upprunalega öðruvísi en þegar það eru tvö lítil börn á heimilinu þá er tíminn í eldamennskuna minni og ég er búin að vera einfalda hana og er ekki frá því að hún verði betri með tímaum. Ég ætla deila með ykkur þessari dásamlega góðu fiskuppskrift og er nokkuð viss um að þið verðið sko ekki svikin,“ segir Gígja um þennan rétt.

Þorskur með smjörsósu, chili og furuhnetum

Uppskrift er fyrir 3 en hana er auðvelt að stækka.

  • 600 g þorskur
  • 3 stilkar fersk steinselja
  • 2 stk. ferskur chili
  • 70 g ristaðar furuhnetur
  • 2 msk. olía
  • safi úr hálfri sítrónu
  • salt og pipar

Smjörsósa

  • 100 g smjör
  • 3 msk. sojasósa

Sætkartöflumús

  • 1 stk. sæt kartafla, stór
  • 3 msk. smjör
  • 2 stk. hvítlauksrif, pressuð
  • salt

Sætkartöflumús

Berið smá olíu á kartöfluna í heilu lagi og setjið inn í ofn á 150 gráður í 2 tíma.

Þegar kartaflan er elduð í gegn er hún tekin út og skafið innan úr henni og sett í skál ásamt smjöri, hvítlauk og salti.

Ég er mjög hrifin af þessari aðferð þar sem uppvaskið er minna og það þarf ekki að vera fylgjast með kartöflunni, heldur set ég hana inn 2 tímum fyrir kvöldmat og tek út þegar fiskurinn fer inn.

Þorskur

Skerið niður steinselju og chili og setjið í skál með furuhnetum, olíu, sítrónusafa, salti og pipar.

Leggið þorskflökin í eldfast mót. Saltið og piprið og setjið 2/3 af blöndunni ofan á fiskinn.

Fiskurinn er síðan eldaður í ofni á 200 gráðum í 12-15 mínútur.

Smjörsósa

Þegar fiskurinn fer inn í ofn er gott að byrja á smjörsósunni

Smjör er brætt í potti við miðlungs hita og látið malla í um 10 mínútur.

Þá er smjörið tekið af hellunni og froðan veidd af með skeið.

Sojasósunni er bætt við smjörið og hrærð saman við.

Þegar allt er tilbúið þá fara fiskurinn og sætkartöflumúsin á diskinn, smjörsósunni er hellt yfir og restin af furuhnetublönduni sett á.

Höfundur: Gígja S. Guðjónsdóttir

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert