Hvað er verið að gera við kjúklinginn?

Hér má sjá snjöllustu aðferðina til að elda kjúklingaleggi inn …
Hér má sjá snjöllustu aðferðina til að elda kjúklingaleggi inn í ofni. Mbl.is/rajmin2025/TikTok

Það er stundum þannig að fréttir fá okkur til að gapa! Þá oftast af undrun eins og í þessu tilviki, er við sáum kjúklingaleggi hanga á hvolfi inni í ofni. Eitt er víst að samfélagsmiðillinn TikTok hefur mótað okkur í að vera skilvirkari í eldhúsinu með öll þau heimsins ráð og uppskritir sem þar fljóta um daglega. Og í þessu tilviki deilum við með ykkur bestu aðferðinni til að elda kjúklingaleggi að sögn tiktoknotanda.

Hér leggur þú ofngrindina yfir kjúklingaleggina og stingur endabeininu í gegn um rifflurnar. Því næst lyftirðu grindinni upp og setur inn í ofn. Þannig hangir kjúklingurinn inn í ofni og ekki skemmir fyrir ef þú ert með grænmeti í ofnskúffu fyrir neðan – þá lekur marineringin af kjúklingnum beint niður.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert