Súpereinföld uppskrift sem allir í fjölskyldunni elskuðu

Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir

Berglind Hreiðars á Gotteri.is á heiðurinn að þessari uppskrift sem er vel þess virði að prófa. Hún segir hana afar einfalda en einstaklega bragðgóða sem er akkúrrat það sem við leitum eftir þegar við ákveðum hvað á að vera í kvöldmat. 

„Hver elskar ekki pastarétti, lasagna, hakk og spagetti og þar fram eftir götunum? Slíkir réttir eru fullkomnir í miðri viku og eru afar fjölskylduvænir að mínu mati. Canneloni er útfærsla af pastarétti sem ég hef ekki prófað að gera áður og skemmtilegt að breyta aðeins til. Hér kemur súpereinföld uppskrift sem allir í fjölskyldunni elskuðu!“ segir Berglind. 

Canneloni

  • Um 500 g nautahakk
  • ½ laukur (saxaður)
  • 2 hvítlauksrif (söxuð)
  • 2 pakkar ferskar lasagnaplötur
  • 1 poki Toro bolognese sósa með hvítlauk
  • 400 ml vatn
  • Um 200 g Mascarpone ostur
  • Kirsuberjatómatar og basilíka
  • Bezt á allt krydd
  • Ólífuolía

Aðferð:

  1. Hitið ofninn í 200°C.
  2. Byrjið á því að steikja hakk, lauk og hvítlauk upp úr ólífuolíu og krydda eftir smekk.
  3. Skerið næst niður 10 einingar af lasagnaplötum og skiptið nautahakkinu á milli þeirra.
  4. Rúllið hverri lasagnaplötu fyrir sig upp og raðið í eldfast mót sem búið er að smyrja að innan með matarolíu.
  5. Hitið næst vatnið á pönnunni og hrærið Bolognese duftinu saman við svo úr verði ljúffeng pastasósa.
  6. Hellið sósunni jafnt yfir upprúlluðu lasagnaplöturnar og bakið í ofninum í um 20 mínútur, takið þá út, setjið Mascarpone ostinn yfir og aftur í ofninn í um 5 mínútur.
Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert