Kramdar kartöflur með kryddblöndu og osti

Ljósmynd/Tinna Th.

Þessar kartöflur hljóma nánast of góðar til að vera sannar enda segir höfundur þeirra, Tinna Þorradóttir, að þær klárist alltaf upp til agna.

„Uppáhaldið mitt við grillmat eru góðar kartöflur. Ég er miklu meira fyrir meðlætið en kjötið sjálft. Þú gætir boðið mér í mat og boðið upp á kartöflur með góðri sósu og ég væri meira en sátt! Ég útbjó þessar kartöflur í gærkvöldi og þær kláruðust upp til agna. Kryddaðar með hreinu kryddunum frá Pottagöldrum og toppaðar með smá af rifnum osti til þess að setja punktinn yfir i-ið. Mæli með að prófa næst með grillmatnum!“

Kramdar kartöflur með kryddblöndu og osti

  • 500 g litlar kartöflur
  • 1/2 dl ólífuolía
  • 60 g smjör brætt
  • 2 msk. kóríanderlauf frá Pottagöldrum
  • 2 tsk. hvítlauksduft frá Pottagöldrum
  • 2 tsk. laukduft frá Pottagöldrum
  • 2 tsk. paprikukrydd frá Pottagöldrum
  • 1 tsk. salt
  • 1/2 tsk. pipar
  • parmesanostur eða prima donna-ostur, magn eftir smekk

Aðferð:

  1. Sjóðið kartöflurnar í um það bil 12 mínútur eða þar til þær eru „fork tender“
  2. Blandið saman í skál olíu, bræddu smjöri og öllu kryddinu
  3. Aðskiljið vatnið og kartöflurnar og setjið kartöflurnar í stóra skál
  4. Hellið kryddblöndunni yfir kartöflurnar og blandið vel saman
  5. Hellið kartöflunum á bökunarplötu og kremjið þær aðeins með botninum á glasi eða kartöflustappara ef þið eigið svoleiðis
  6. Inn í ofn við 180 gráður í um það bil 40 mínútur – þegar 20 mínútur eru liðnar, setjið þá smá ost yfir kartöflurnar
  7. Þegar kartöflurnar eru tilbúnar og komnar í ílátið sem þið ætlið að bera þær fram í, setjið þá smávegis meira af osti yfir
Ljósmynd/Tinna Th.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert