Jólalakkrísinn frá Lakritsfabriken rauk út eins og heitar lummur í fyrra og er nú komið aftur, lakkrísáhugafólki til mikillar gleði.
Dagatalið inniheldur heil 720 g af hágæða lakkrís og kemur í fallegri öskju sem gaman er að opna.
Lakritsfabrikken er ungt sænskt fyrirtæki sem hefur vakið verðskuldaða athygli fyrir úrvals lakkrís og eins fyrir mikið magn lakkríss í hverri vöru sem eru bæði glútein- og gelatín lausar.
Dagatalið fæst hjá Raritet, í Garðheimum, Sælkerabúðinni og Auði blómabúð svo að fáeinir sölustaðir séu nefndir.