Eldhúsið sem talið er eitt það allra flottasta í heiminum

Jenna Lyons er einn allra þekktasti hönnuður Bandaríkjanna og frægt er þegar hún tók tískurisann J.Crew og blés í hann nýju lífi. Síðan eru liðin nokkur ár og Lyons hleypir hönnunartímaritum reglulega inn á heimili sín sem eru með því allra svalasta sem sést.

Hér gefur að líta eldhúsið í þakíbúð hennar í Soho í New York. Eldhúsið er ofursmart þar sem messing, marmari og dökkblár tóna fullkomlega saman og algjörlega í anda Lyons.

Eldhúsið er eitt af þeim sem reglulega komast í fréttirnar fyrir að vera flottari en flest önnur eldhús og því ekki úr vegi að birta myndir af því hér.

Jenna Lyons
Jenna Lyons
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert