Papriku- og chilisulta Sollu á Stöðvarfirði

Solveig Friðriksdóttir, sultugerðarmeistari með meiru.
Solveig Friðriksdóttir, sultugerðarmeistari með meiru. Ljósmynd/Albert Eiríksson

Nú stendur sultutíðin sem hæðst og Albert Eiríksson deildi af því tilefni þessari geggjuðu uppskrift að sultu. Höfundur hennar er Solveig Friðriksdóttir jógakennari og margt fleira á Stöðvarfirði sem hefur þróað sínar útgáfur af papriku- og chilisultunni góðu. Hér eru tvær útgáfur, önnur með engifer og hin með appelsínu. Báðar mjög góðar. Ef þið viljið ekki hafa sultuna mjög sterka er ráðið að sleppa að nota chilifræin og hvíta hlutann sem þau hanga á.

Til gaman má geta þess að Solla ræktar chili sjálf.

Papriku- og chilisulta Sollu
  • 4 -5 rauðar frekar stórar paprikur
  • 5-10 st.k chili aldin
  • 1 appelsína
  • 250-300 ml edik
  • 600 g sultusykur (eða sykur + 1 poki hleypir)

Aðferð:

Chili ásamt fræjum saxað smátt í matvinnsluvél.
Paprikan kjarnhreinsuð og skorin í grófa bita, börkurinn tekinn af appelsínunni og hún skorin í bita. Bætt út í chili mixið og saxað (ekki alveg í mauk)

Blandan sett í pott, sykri og ediki bætt saman við. Látið malla saman í nokkrar mínútur. Ef hleypir er notaður ásamt sykrinum er hann settur í og soðið skv leiðbeiningum á pakka. Látið kólna smá áður en sett er á hreinar krukkur. Krukkunum lokað, látið standa á bekk meðan hún kólnar og svo í ísskáp.

Papriku- og chilisulta Sollu með engifer

  • 3-4 gular og 1 rauð paprika (frekar stórar)
  • 5-10 stk. chili aldin
  • 30-50 g engifer
  • 1 sítróna
  • 250-300 ml edik
  • 600 gr sultusykur (eða sykur + 1 poki hleypir)

Chili ásamt fræjum og engifer (án hýðis) saxað smátt í matvinnsluvél. Paprikan kjarnhreinsuð og skorin í grófa bita. Börkurinn tekinn af sítrónunni og hún skorin í bita. Bætt út í skálina með chili/engifer og saxað (ekki alveg í mauk).

Blandan sett í pott, sykur og ediki bætt saman við. Látið malla saman í nokkrar mínútur. Ef hleypir er notaður ásamt sykrinum er hann settur í og soðið skv leiðbeiningum á pakka. Látið kólna smá áður en sett er á hreinar krukkur. Krukkunum lokað, látið standa á bekk meðan hún kólnar og svo í ísskáp.

*ATH – Erfitt er að áætla magn chili því aldin eru mis sterk. Það er því smekksatriði hve mikið er af því. Ég hef fræin með til að fá sem mestan styrk en að sjálfsögðu má kjarnhreinsa hann líka. Einnig með engiferinn, hann rífur vel í og saman eru þeir mjög hressandi.
Einnig er hægt að nota sukrin eða annan “sykur” sem má sjóða til að fá sykurlausa útgáfu.

Ljósmynd/Albert Eiríksson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert