Eitt metnaðarfyllsta föstudagskaffi sem sést hefur

Hluti af starfsfólki Þelamerkusskóla, nokkur voru önnum kafin. Aftari röð …
Hluti af starfsfólki Þelamerkusskóla, nokkur voru önnum kafin. Aftari röð f.v.: Margrét Óladóttir, Hulda Arnsteinsdóttir, Berglind Vala Valdimarsdóttir kennaranemi, Óli Rúnar Ólafson, Anna Rósa Friðriksdóttir, Ragna Baldvinsdóttir, Sindri Snær Konráðsson og Sigríður Guðmundsdóttir. Fremri röð f.v. Kolbrún Eva Pálsdóttir, Anna Rós Finnsdóttir, Ragnheiður Lilja Bjarnadóttir og Halla Björk Þorláksdóttir. Ljósmynd/Albert Eiríksson

Albert Eiríksson, matarbloggari og lífskústner með meiru, heldur áfram að bjóða okkur með sér í kaffiboð og í þetta skipti var hann mættur í Þelamerkurskóla í Hörgársveit þar sem móttökurnar létu ekki á sér standa.

„Í Þelamerkurskóla í Hörgársveit er eitt metnaðarfyllsta föstudagskaffi sem ég hef komist í. Ragnheiður Lilja Bjarnadóttir skólastjóri, sem nokkrum sinnum hefur komið hér við sögu áður, tók vel í að kanna hjá sínu fólki hvort þau vildu deila herlegheitunum á alberteldar. Þau létu ekki segja sér það tvisvar og úr varð stórglæsilegt föstudagskaffi,“ segir Albert og hér má sjá dýrðina.

Ljósmynd/Albert Eiríksson

Eplanachos

  1. Epli skorin í skífur, raðað fallega á platta og sítrónu- eða limesafi settur yfir – svo þau haldist fersk.
  2. Súkkulaði brætt (ég notaði suðusúkkulaði með karmellukurli og sjávarsalti), og möndlusmjöri síðan bætt við það svo það bráðni saman við.
  3. Súkkulaðinu er svo helt yfir eplin og því næst er kókosi og ristuðum kókosflögum dreift yfir.
  4. Það er hægt að nota hnetusmjör í staðinn fyrir möndlusmjör og eins er hægt að nota í raun hvaða súkkulaði sem er eða breyta til í því sem dreift er yfir í lokin.
Ljósmynd/Albert Eiríksson

Döðlukaka

  • 235 g döðlur
  • 1 tsk. matarsódi
  • 120 g smjör (mjúkt)
  • 5 msk. sykur
  • 2 stk. egg
  • 3 dl hveiti
  • ½ tsk. salt
  • ½ tsk. vanilludropa
  • 1 ⅓ tsk. lyftiduft

Aðferð:

  1. Döðlur settar í pott og vatn látið fljóta yfir. Látið suðuna koma upp og leyfið þessu aðeins að malla.
  2. Láta standa i 3 mín. og bæta þá matarsóda við. Þeyta smjör og sykur vel saman, bæta við einu og einu eggi, svo hveiti, salti og vanilludropum.
  3. Loks lyftidufti út í ásamt helmingnum af döðlumaukinu fyrst og svo er restin af maukinu sett útí.
  4. Smyrja vel 24 cm form.
  5. Bakist við 180˚C í ca 30-40 mín.

Karamellusósa

  • 120 g smjör
  • 115 g púðursykur
  • ½ tsk. vanilludropar
  • ¼ bolli rjómi

Allt sett saman i pott og láta suðuna koma upp,lækka og hræra reglulega í pottinum.

Ljósmynd/Albert Eiríksson

Hollar nammikúlur
-Þessar þarf ekki að baka, bara stinga inn í ísskápinn- (sirka 20 stk):

  • 2 dl möndlur
  • 2 ½ dl ferskar döðlur (eða 10 döðlur – mikilvægt að taka steininn úr! )
  • 1 kúffull msk möndlusmjör
  • 1 tsk. hlynsíróp eða agave sýróp
  • 2 tsk. kakó
  • ⅕ tsk. salt

Hjúpur:

  • 100 g suðusúkkulaði
  • ½ tsk. kókosolía
  • saltflögur

Aðferð:

  1. Settu möndlurnar í matvinnsluvél.
  2. Hakkaðu möndlurnar þar til þær eru orðnar að kurli.
  3. Settu döðlurnar (án steina) í matvinnsluvélina og blandaðu.
  4. Bættu kakó, salti, sýrópi og möndlusmjöri út í og maukaðu vel saman.
  5. Búðu til litlar kúlur úr deiginu.
    Settu kúlurnar á disk og geymdu í ísskáp í 30-60 mín.

Hjúpur:

  1. Bræddu súkkulaðið og hrærðu kókosolíunni saman við í pottinum.
  2. Veltu kúlunum upp úr súkkulaðinu og raðaðu þeim á disk.
  3. Það er gott að setja bökunarpappír undir svo þær festist ekki við diskinn.
  4. Stráðu saltinu yfir súkkulaðið að lokum.
  5. Geymdu kúlurnar í ísskáp í allavega 30 mínútur svo súkkulaðið nái að harðna vel.
Ljósmynd/Albert Eiríksson

Frækex RL

  • 2 dl sólblómafræ
  • 2 dl graskersfræ
  • 2 dl hörfræ
  • 2 dl sesamfræ
  • 2 dl chiafræ
  • 2 dl möndlumjöl
  • 2 dl Husk
  • 4 dl sjóðandi vatn
  • ½ dl olía
  • ½ tsk salt
  • Rifinn ostur
  • Gróft salt

Aðferð:

  1. Öllu blandað vel saman með sleif og þjappað á bökunarplötu. Passa að hafa ekki of þykkt.
  2. Rifnum osti dreift yfir og því næst grófu salti
  3. Bakað við 150°C í 40-50 mín. Skellið á undirhita ef osturinn fer að dökkna of mikið.
  4. Brjótið og njótið 
Ljósmynd/Albert Eiríksson



Allra besta hráfæðikakan

  • 150 g möndlur
  • 20 stk. döðlur, steinlausar
  • 2 msk. kókosolía
  • 1 tsk. vanilludropar
  • 3 msk. sterkt kaffi
  • ⅔ dl kókosflögur
  • 2 msk. kakó
  • salt á hnífsoddi
  • 150 g dökkt súkkulaði

Aðferð:

  1. Byrjið á að rista möndlur í 225°C heitum ofni í um 10 mínútur. Hrærið af og til í blöndunni. Takið út og kælið.
  2. Setjið döðlur, kókosolíu, kaffi, kakó, kókosflögur, salt og vanilludropa saman í matvinnsluvél og blandið vel saman. Grófsaxið möndlurnar og bætið þeim saman við.
  3. Mótið kökuna á kökudiski.
  4. Bræðið súkkulaði og hellið yfir kökuna. Kælið í smá stund.
  5. Berið fram og njótið!
Ljósmynd/Albert Eiríksson

Huldu súrdeigsbrauð

  • ca 250 g volgt vatn
  • 150 g súr
  • 15 g salt
  • 50 g heilhveiti
  • 50 g korn
  • ca 400 g hveiti

Aðferð:

  1. Allt sett í sömu skál, blandað saman með sleif. Leyfa því að taka sig á bekknum fram að háttatíma, skella þá í form með bökunarpappír undir, poka yfir og inn í ísskáp. Ekkert flókið við þetta!
  2. Ég baka brauðið alltaf í lokuðum potti, svona svörtum eins og lærin eru steikt í. Ef þú bakar í ofninum þá hef ég hann ca 200°C heitan. Taka svo lokið af pottinum eftir ca 45 mín og baka áfram þangað til þér líst á brauðið.
Ljósmynd/Albert Eiríksson

Heimagerð rúllupylsa

  1. Þessi rúllupylsa var gerð úr lambaslögum af lambi úr Hörgársveit. Rifin tekin úr, slagið fituhreinsað, smá salti frá Reykjanesi og hvítum pipar stráð yfir, rúllað upp og sett í net.
  2. Síðan þarf rúllupylsan að liggja í saltpækli í viku og reykjast í Hörgársveitarkofa í 4 góðar uppkveikjur.
  3. Svo er pylsan soðin í tæpan klukkutíma, pressuð og hennar notið með góðu brauði eða hún er borðuð eintóm.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert