Svona þrífur þú ofninn án þess að skrúbba

Hér er aðferð fyrir þá sem nenna ekki að leggja of mikið á sig til að þrífa ofninn – en vilja samt sem áður að þrifin verði áhrifarík. Því þú þarft ekki alltaf að skrúbba mjög fast eða mikið til að fá bestu úrslitin í hreinan bakaraofn.

Svona þrífur þú ofninn

  • 1 bolli matarsódi
  • ¼ bolli uppþvottalögur
  • Skvetta af vatni til að blanda öllu saman.
  • Setjið blönduna á helluborðið eða ofninn og látið standa í 2 tíma. Hér væri sniðugt að nota málningarpensil til að smyrja blöndunni á.
  • Notið hreina tusku til að þurrka óhreinindin af og þú munt horfa á ofninn taka breytingum til hins betra.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert