Beef bourguignon eins og þú færð á SNAPS

Ljósmynd/Guðrún Ýr Eðvaldsdóttir

„Ég fór á Snaps fyrir tilviljun á Menningarnótt og pantaði mér þar Beef bourguignon og það var svo gott að það er búið að vera í kollinum á mér síðan að prófa að gera það heima, sem ég gerði um helgina og það sló heldur betur í gegn. Ótrúlega bragðgóður réttur sem er ekki mikil fyrirhöfn á nema að leyfa honum hreinlega að eldast sjálfur inn í ofni, til dæmis tilvalið að skipta honum út fyrir sunnudagslærið núna á haustdögum. Svo þess virði,“ segir Guðrún Ýr Eðvaldsdóttir á Döðlur & smjör um þennan klassíska rétt sem hittir alltaf í mark.

„Gott er að nota pottjárnspott svo hægt sé að setja pottinn inn í ofn en auðvitað hægt að leyfa réttinum að eldast í potti á miðlungsháum hita í stað ofnsins. Mæli líka með að nota ferskar kryddjurtir en að sjálfsögðu er hægt að skipta þeim út fyrir þurrkaðar/krydd.“

Naut í rauðvínssósu

fyrir 4-6 manns

  • 200 g beikon
  • 1,5 kg nautakjöt (gúllas)
  • 2 msk. ólífuolía
  • 1 laukur
  • 4 gulrætur
  • 3-4 hvítlauksrif
  • 2 msk. hveiti
  • 600 ml rauðvín
  • 600 ml vatn
  • 2 nautakraftar
  • 2 msk. tómatpúrra
  • 2 lárviðarlauf
  • 1 msk. fersk steinselja
  • 1 msk. ferskt timjan
  • ½ tsk. salt og
  • 1 tsk. pipar
  • 2 msk. smjör
  • 250 g sveppir
  • sósujafnari eftir þörfum

Aðferð:

  1. Stillið ofn á 175°C. Skerið beikonið í litla bita og steikið í pottinum, þangað til að það er vel steikt, takið þá af og leggið til hliðar.
  2. Þá setjið þið kjötið í pottinn og brúnið það. Skerið gulrætur í bita og laukinn smátt niður. Takið kjötið af pönnunni og setjið hjá beikoninu.
  3. Setjið þá olíu, gulræturnar og laukinn á pönnuna og steikið í 2-3 mín eða þangað til að laukurinn er orðinn mjúkur, bætið þá mörðum hvítlauk saman við.
  4. Þá er kjötinu og beikoninu blandað saman við grænmetið ásamt tveimur msk af hveiti. Hrærið létt saman.
  5. Bætið þá vökvanum og kryddum saman við og hrærið í. Setjið pottinn inn í ofn og leyfið réttinum að krauma í honum næstu þrjá tímana.
  6. Skerið sveppina gróft og steikið upp úr smjöri og það sakar ekki að hafa smá hvítlauk með.
  7. Takið þá pottinn úr ofninum og bætið sveppunum saman við. Þá er komið að því að taka lárviðarlaufin úr pottinum og sigta soðið frá kjötinu og grænmetinu.
  8. Svo takið sigti og leggið yfir pott og síið vökvann frá. Setjið kjötið og grænmetið aftur í pottinn sem það var í á meðan þið leyfið sósunni að þykkna.
  9. Ef þið hafið stund til þess er gott að leyfa henni að þykkna dálítið sjálf með því að sjóða hana í u.þ.b. 10 mín, ef þið eruð óþolinmóð eins og ég er þá er gott að nota sósujafnara og þykkja sósuna vel.
  10. Þá er rétturinn klár, ég mæli með að bera hann fram með kartöflumús og jafnvel smá brauði til að geta náð upp allri sósunni af disknum, hún er það góð!
Ljósmynd/Guðrún Ýr Eðvaldsdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert