Múffurnar sem sonur Guðrúnar elskaði

Ljósmynd/Guðrún Ýr Eðvaldsdóttir

Það er enginn önnur en Guðrún Ýr á Döðlur & smjör sem á heiðurinn að þessum dýrðlegum múffum sem við erum pínu að tryllast yfir.

„Stundum kemur upp í huga mér eitthvað sem ég verð að prófa að gera, því ég er viss um að það sé stórgóð hugmynd, ekki það að maður sé einhvern tímann að finna upp hjólið í þessum geira en vissulega að koma með sitt að borðinu.

Þessar gulrótarmúffurs eru alveg einstaklega mjúkar, bragðgóðar og bara einfaldlega frábærar. Þær koma skemmtilega á óvart þegar bitið er í þær þar sem kremið leynist inn í. Sonur minn sem er níu ára var yfir sig hrifinn og setti þær í Topp 3 hjá sér en hann er ásamt öðrum í fjölskyldunni orðinn vel sjóaður smakkari.

Ég sé svo fyrir mér að þær væru frábærar á öll bröns-borð, með kaffinu og það sem ég sá stjörnur yfir er að það er frábært að frysta þær og taka eina með sér í nesti í vinnuna til að eiga með kaffinu, hversu geggjað væri það! Er það kannski bara sætabrauðskellan í mér!“

Gulrótarmúffur – u.þ.b. 20 stk –

  • 100 g sykur
  • 50 g púðursykur
  • 2 egg
  • 320 g hveiti
  • 1½ tsk. lyftiduft
  • ½ tsk. matarsódi
  • 1 tsk. kanill
  • ½ tsk. engifer (má sleppa)
  • ½ tsk. salt
  • 180 ml vatn
  • 80 ml olía
  • 100 g gulrætur (u.þ.b. 3 stk.)

Stillið ofn á 200°c. Setjið sykur, púðursykur og egg saman í skál og þeytið saman. Bætið þá þurrefnunum saman við og þeytið létt saman. Bætið þá vatni og olíu saman við og þeytið þangað til að deigið er samlagað. Hér er betra að þeyta frekar skemur en lengur. Rífið gulræturnar niður og blandið saman við með sleikju.

Rjómaostafylling

  • 200 g rjómaostur
  • 40 g flórsykur
  • 1 tsk. vanilludropar

Blandið öllu saman í skál og hrærið varlega saman.

Streusel

  • 150 g hveiti
  • 100 g sykur
  • 100 g smjör, brætt
  • 1 tsk. kanill
  • ¼ tsk. salt

Blandið öllum hráefnum saman í skál og vinnið saman með höndunum.

Samsetning

Sjá múffuform hér fyrir neðan.

Setjið eina matskeið af deigi í botninn á hverju formi. Takið þá teskeið af rjómaostafyllingu og setjið í miðjuna á hverju formi. Takið þá aðra matskeið af deigi og setjið yfir fyllinguna. Gott er að miða við að fylla formin að tveimur þriðju.

Takið þá streusel og stráið yfir hverja köku fyrir sig, setjið vel af því á hverja köku. Setjið á bökunarplötu og inn í ofn í 10 mínútur ef þið eruð með hefðbundin múffuform en 15 mínútur ef þið eruð með stærri form.

Múffuform

Takið bökunarpappír og klippið niður í u.þ.b. 10×10 cm ferninga.

Takið glas sem botninn passar ofan í múffuform og hvolfið. Pressið pappírnum niður meðfram glasinu og setjið í muffinsform svo þær haldi sér betur í bakstrinum. Flóknara er það ekki.

Ljósmynd/Guðrún Ýr Eðvaldsdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert