Geggjað grænmetis lasagna sem þú verður að prófa

Ljósmynd/Guðrún Ýr Eðvaldsdóttir

„September er tilvalinn tími til að núllstilla mataræðið aðeins eftir sumarið og því tilvalið að elda létta og bragðgóða grænmetisrétti líkt og þetta bragðgóða grænmetis lasagna,“ segir Guðrún Ýr Eðvaldsdóttir um þessa girnilegu uppskrift sem vert er að prófa.

Bragðgott grænmetis lasagna

Uppskriftin dugar fyrir 4-6

  • 3 msk. ólífuolía
  • 1 stk. blaðlaukur
  • 3 stk. hvítlauksrif
  • 1⁄2 stk. sæt kartafla
  • 2 stk. gulrætur
  • 1⁄2 stk. blómkálshaus, lítill
  • 1⁄2 stk. kúrbítur
  • 1 dós niðursoðnir tómatar
  • 2 msk. tómatpúrra
  • 1 stk. kjúklingakraftur, teningur
  • 200 ml vatn
  • 2 tsk. óreganó
  • 2 msk. ítölsk hvítlauksblanda, Pottagaldrar
  • salt og pipar
  • 500 g kotasæla frá MS
  • 90 g sýrður rjómi 18% frá Gott í matinn
  • 100 g spínat
  • 3 msk. parmesanostur eða Goðdala Feykir
  • 1⁄2 tsk. salt
  • pipar eftir smekk
  • lasagna plötur
  • rifinn Gratínostur frá Gott í matinn

Aðferð:

  1. Skerið niður blaðlauk og setjið út á pönnu ásamt olíu, pressið hvítlaukinn og bætið saman við.
  2. Skerið grænmetið niður eftir ykkar hentisemi en ég sker það smátt og set jafnvel í matvinnsluvél.
  3. Bætið grænmetinu á pönnuna, steikið við meðal háan hita, í 5-7 mín, bætið þá niðursoðnum tómötum, tómatpúrru, tening og vatni saman við og kryddið.
  4. Leyfið að malla í u.þ.b. 10 mín.
  5. Stillið ofn á 180°C.
  6. Blandið saman í skál kotasælu, sýrðum rjóma, spínati, parmesan, salti og pipar og hrærið vel saman.
  7. Takið þá eldfast mót og byrjið að raða.
  8. Fyrst kemur grænmetis blandan, síðan lasagna plata og kotasælu blandan ofan á.
  9. Endurtakið þar til allt hráefnið er komið í mótið.
  10. Endið á því að setja vel af osti yfir.
  11. Setjið inn í ofn og bakið í u.þ.b. 30 mín.
Ljósmynd/Guðrún Ýr Eðvaldsdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert