Geggjaður pastaréttur sem tekur enga stund

Ljósmynd/María Gomez

„Cacio a pepe er rammítalskur spagettíréttur sem er venjulega gerður með olíu, pecorino osti og pipar. Þessa útgáfu eða svipaðri þessari sá ég hins vegar á Tik Tok og fannst hún bara meira djúsí og ákvað að gera mína eigin útgáfu af henni,“ segir María Gomez um þessa ómótstæðilegu uppskrift.

„Þessi réttur er afar einfaldur og tekur enga stund að gera. Ég mæli með því að hafa hvítlauksbrauð og ferskt salat með honum til að fá smá ferskleika með smjörbragðinu.“

Cacio a pepe með smá twisti eða spagettí með piparpecorino smjörbollu

  • 300 gr spagettí frá De Cecco finnst mér best 
  • 150 gr mjúkt smjör 
  • 100 gr rifinn pecorino ostur 
  • fullt af nýmöluðum svörtum pipar 

Aðferð

  1. Sjóðið spagettí eftir leiðbeiningum á pakka en munið að hafa vatnið vel salt, nánast eins og sjóvatn
  2. Rífið niður pecorino ostinn í rifjárni og hrærið út í mjúkt smjörið ásamt fullt af svörtum pipar, eftir smekk 
  3. Setjið smjörið í skál og setjið á borðið ásamt sjóðandi heitu spagettí
  4. Best er að bera fram spagettíið sjóðandi heitt og fá sér svo góða slettu af piparostasmjörinu út á og láta það bráðna yfir spagettíið, setja svo smá auka af ólifuolíu og enn meiri rifinn pecorino ost yfir 
  5. Ég mæli með því að hafa hvítlauksbrauð og ferskt salat með til að fá smá ferskleika með smjörbragðinu
Ljósmynd/María Gomez
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert