Fimm bestu húsráð vikunnar

Við getum alltaf á okkur húsráðum bætt.
Við getum alltaf á okkur húsráðum bætt. mbl.is/sheholdsdearly.com

Við komum víða við í húsráðum dagsins  því hér er stiklað á góðum ráðum, allt frá sítrónusafa í rjómann yfir í geitaost. 

  • Vissir þú að nokkrir dropar af sítrónusafa fá rjómann til að verða jafnari og storkna fyrr. 
  • Vissir þú að með því að dýfa lauk í vatn áður en þú skerð hann munu færri tár leka niður kinnarnar. 
  • Vissir þú að með því að láta heitt vatn renna á hníf mun hann skera mjúklega í gegnum hvaða köku sem er. 
  • Vissir þú að best er að skræla banana með því að taka endann af (þá ekki endann með stilknum á). 
  • Vissir þú að hægt er að nota tannþráð til að skera mjúkan ost eins og brie og geitaost.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert