Gömul Georg Jensen klassík í nýjum lit

Vatnskannan Koppel er nú fáanleg í nýjum litum.
Vatnskannan Koppel er nú fáanleg í nýjum litum. mbl.is/Georg Jensen

Ein vinsælasta kanna Georg Jensen var eitt sinn í glansandi ryðfríu stáli - og nú sést hún í möttum og mjúkum litum. 

Koppel, er nafnið á klassísku vatnskönnunni sem Henning Koppel hannaði á fimmta áratugnum og hefur notið ómældrar vinsældar síðan þá og ekki að ástæðulausu - enda með einstaklega mjúkar línur. Kannan sem hefur fengið yfirhalningu, dregur litaval sitt af penslastrokum sem Koppel gaf teikningum sínum til að fullgera hugmyndirnar sínar. Og sést hér í nýrri vöru á glæsilegri könnu, sem stendur falleg ein og sér eða í bland við aðra liti. 

mbl.is/Georg Jensen
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert