Drykkurinn sem bætir lífið um 12%

Við þurfum nú ekki mikið meira en það og því skal haldið til haga að Linda Ben hefur aldrei haldið þessari prósentutölu fram en segir þó að drykkurinn bragðist einstaklega vel og veiti mikla og langvarandi orku. Það er nóg til þess að reikna lífsgæðaaukningu upp á 12% og við það stöndum við.

„Matcha er mulið te sem mikil ofurfæða, mjög ríkt af andoxunarefnum og inniheldur svolítið af koffeini. Það gefur mjúkt orkukikk og því upplagt að fá sér þennan smoothie á morgnanna,“ segir Linda um þennan ljúffenga drykk.

„Drykkurinn er sætur og góður á bragðið en hann inniheldur banana, mangó og fullt af spínati. Það er mikilvægt að setja fitu og prótein í smoothiea og því eru einnig hampfræ og hörfræ í drykknum ásamt vanillu og kókos hafrajógúrtinu frá Veru en ég elska það jógúrt í allskonar drykki. Ef þið viljið þá er líka hægt að bæta smá vanillupróteini út í drykkinn til að fá ennþá meira prótein.“

Matcha smoothie

  • Lúka spínat
  • 1 1/2 dl frosið mangó
  • 1 banani
  • 1 msk. hampfræ
  • 1 msk. hörfræ
  • 1 tsk. matcha
  • 2 dl hafrajógúrt með vanillu og kókos frá Veru Örnudóttir
  • Klakar (u.þ.b. 1 dl en annars eftir smekk)

Aðferð:

  1. Setjið öll innihaldsefni saman í blandara og blandið þar til drykkur hefur myndast.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert