Tertan sem klárast fyrst í öllum veislum

Ljósmynd/Helena Gunnarsdóttir

Jæja gott fólk. Ef það á að skella í eina góða tertu á næstunni þá er nákvæmlega ekkert sem toppar gömlu góðu perukökuna. Það er engin önnur en Helena Gunnarsdóttir sem á heiðurinn að þessari uppskrift sem er skotheld.

„Peruterta er uppáhalds terta margra og við fjölskyldan erum þar engin undantekning. Þessi hnallþóra er gerð fyrir öll afmæli og slær alltaf jafn mikið í gegn og er yfirleitt sú terta sem klárast fyrst. Þessi útgáfa er klassísk en mér finnst gaman að bæta við hana marengsbotni og þeyttum rjóma. Það er þó ekki nauðsynlegt og stendur gamla góða útgáfan alltaf fyrir sér. Ég viðurkenni einnig fúslega að ég stytti mér oft leið og kaupi tilbúna svampbotna sem eru ekkert síðri. En hér fylgir uppskrift að einföldum svampbotnum.“

Perutertan sem er ómissandi á veisluborðið

Svampbotnar:

  • 4 egg
  • 200 g sykur
  • 130 g hveiti
  • 1 tsk. lyftiduft

Aðferð:

  1. Hitið ofninn í 175 gráður með blæstri
  2. Þeytið egg og sykur mjög vel saman þar til blandan er ljós og létt
  3. Sigtið saman hveiti og lyftidufti og hrærið varlega saman við með sleikju
  4. Setjið í tvö smurð og bökunarpappírsklædd kökuform og bakið þar til botnarnir eru gullnir að lit eða í u.þ.b. 12-15 mínútur. Kælið á grind

Súkkulaðirjómi:

  • 150 g suðusúkkulaði
  • 5 eggjarauður
  • 5 msk. flórsykur
  • 4 dl rjómi

Aðferð:

  1. Bræðið súkkulaðið við vægan hita eða yfir vatnsbaði
  2. Stífþeytið rjómann og setjið til hliðar
  3. Stífþeytið saman eggjarauður og flórsykur þar til blandan er ljós
  4. Blandið bræddu súkkulaðinu saman við eggjablönduna.
  5. Hrærið að lokum rjómanum varlega saman við

Samsetning:

  • Ein stór dós af niðursoðnum perum

Aðferð:

  1. Sigtið vökvann frá perunum og geymið. Leggið annan svampbotninn á disk og vætið vel í honum með helmingnum af perusafanum.
  2. Skerið helminginn af perunum í litla bita og hinn helminginn í sneiðar til að skreyta tertuna með.
  3. Setjið u.þ.b. 1/3 af súkkulaðirjómanum á botninn og dreifið perubitum yfir.
  4. Bleytið seinni svampbotninn með perusafa og leggið svo ofan á.
  5. Setjið restina af súkkulaðirjómanum ofan á tertuna, dreifið vel úr niður á hliðarnar og skreytið með perusneiðum

Ath. Ef þið viljið uppfæra tertuna er ákaflega gott að setja marengs á milli svambotnanna. Þá legg ég tilbúinn marengsbotn ofan á súkkulaðirjómann með perubitunum (eftir lið 3). Set svo 3 dl af þeyttum rjóma ofan á marengsinn og seinni svampbotninn ofan á það. Toppa svo með kremi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert