Miklar vangaveltur hafa verið um það hvort Tómas Hrafn Sveinsson, betur þekktur sem #TalningarTómas, myndi halda áfram í yfirkjörstjórn í Reykjavík. Tómas stal sem kunnugt er senunni þegar talning í Reykjavík tafðist. Í dag kom í ljós að Tómas mun halda áfram í yfirkjörstjórn þótt ekki sé ljóst hvort hann haldi áfram sem formaður.
Þetta var kunngert á fundi borgarstjórnar í dag en þar var tilkynnt um þriggja manna kjörstjórn til næstu fjögurra ára. Víst er að margir bíða spenntir eftir næstu sveitarstjórnarkosningum eftir þessar fréttir.
Fyrir þá sem ekki þekkja #TalningarTómas þá fór hann að „trenda“ á samfélagsvefnum Twitter seint á kosninganótt, þegar ekkert bólaði á lokatölum. Tómas var formaður yfirkjörstjórnar og kom reglulega fram í fjölmiðlum á kosningadag og tilkynnti um kjörsókn og svo fyrstu tölur úr Reykjavík.
Þegar lokatölur bárust ekki fóru notendur Twitter að verða óþreyjufullir og skelltu margir skuldinni á Tómas. Færslur um Tómas voru merktar #TalningarTómas.
#talningartómas vildi ekkert tjá sig um ástandið í ráðhúsinu. pic.twitter.com/U3ejTJJthd
— Atli Fannar (@atlifannar) June 1, 2014
Aumingja niðurlúti #talningartomas.Hann sinnir bara sínu starfi en allir virðast henda fúkyrðum í hann #Kosningar2014 pic.twitter.com/uzdwi1qo1g
— Tryggvi Björnsson (@MohawkJustice) June 1, 2014