Galdurinn á bak við gott hjónaband?

Alec Baldwin og Hilaria Baldwin ætla endurnýja heitin.
Alec Baldwin og Hilaria Baldwin ætla endurnýja heitin. mbl.is/AFP

Alec Baldwin gerir hlutina með stíl. Hann er þekktur fyrir að vera skapstór og segja meiningu sínu jafnvel þó enginn sé að spyrja. Hann virðist vera að taka hjónabandið með  trukki um þessar mundir og segist ætla að endurnýja heitin reglulega.

Samkvæmt Hello þá hafa Alec og Hilaria Baldwin ákveðið að endurnýja heitin á næstunni. 

Parið sem gifti sig í lok júní árið 2012 í viðurvist vina og fjölskyldu segja galdurinn á bakvið hjónabandið það að eiginkona Alec sé einstaklega þolinmóð kona. „Já ég er einstaklega þolinmóð,“ segir Hilaria í viðtalinu.

Saman eiga hjónin þrjú börn, Carmen þriggja ára, Rafael eins árs og Leonardo 7 mánaða.

Með þrjú börn heima er í nóg að snúast. Hjónin virðast setja fjölskyldulífið í forgang og velferð barnanna þar sem hvert og eitt þeirra fær að njóta sín eftir áhugasviði.

Það hefur ekki tekið langan tíma fyrir parið að stofna …
Það hefur ekki tekið langan tíma fyrir parið að stofna til fjölskyldu. Ánægð Baldwin hjón framan á Hello. Ljósmynd/skjáskot
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál