Það þekkja það margir að finna fyrir stressi í tengslum við vinnuna. Það fer auðvitað eftir fólki hvað veldur stressi og þá hvers konar störf valda stressi en Career Cast tók saman þau störf árið 2018 sem þykja skapa mesta stressið.
Niðurstöðurnar voru fengnar með því vega og meta þætti eins og ferðalög, möguleika á að vaxa í starfi, líkamlega áreynslu, áhrif umhverfis, áhættu í starfi, tengsl við almenning, samkeppni, áhætta á dauða eða alvarlegum slysum, ábyrgð á lífi fólks, skilafresti og vinnu í sviðsljósinu.
Hér má sjá lista yfir það fólk sem vinnur hvað mest stressandi störfin ef farið er eftir niðurstöðunum.
1. Hermenn
2. Slökkviliðsmenn
3. Flugmenn
4. Lögreglumenn
5. Viðburðastjórar
6. Blaðamenn
7. Fréttamenn í beinni útsendingu
8. Fjölmiðlafulltrúar
9. Yfirmenn í fyrirtækjum
10. Leigubílstjórar