Vildi ekki að dóttir sín yrði fyrirsæta

Brooke Shields og Chris Henchy ásamt dóttur sinni, Grier Henchy.
Brooke Shields og Chris Henchy ásamt dóttur sinni, Grier Henchy. JAMIE MCCARTHY

Leikkonan og fyrirsætan Brooke Shields segist hafa verið alfarið á móti ákvörðun dóttur sinnar, Grier Hency, um að gerast fyrirsæta. Shields hefur verið fyrir framan myndavélarnar við leik- og fyrirsætustörf frá unga aldri og var snemma staðráðin í því að dætur hennar myndu ekki fá að feta í fótspor sín.

Shields ræddi um fyrirsætuferil 17 ára dóttur sinnar, Hency, í þættinum Live With Kelly and Mark. Hún segir dóttur sína byrjaða að taka að sér verkefni hér og þar, en hún hafi barist gegn ákvörðun dóttur sinnar lengi þar sem dóttir hennar hafi snemma sagt að hún hefði áhuga á að ganga á tískupöllum.

„Reglurnar hafa breyst“

„Reglurnar hafa breyst síðan ég var fyrirsæta. Við vorum ekki með samfélagsmiðla þegar ég var fyrirsæta,“ sagði Shields. Þá segist hún hafa orðið vitni að því hve mikinn aukaþrýsting stjörnur á tískupallinum standi frammi fyrir í dag og kallaði fyrirsætuiðnaðinn „rottukapphlaup“.

Hún segist hafa haft verulegar áhyggjur þegar Hency fór að hafa áhuga á því að ganga á tískupöllum, enda geti þeir verið grimmir og ekki síður baksviðs. „Ég gekk aldrei tískupalla, ég held að ég hefði ekki getað höndlað það,“ útskýrði hún. 

Á endanum segist Shields hafa þurft að gefa eftir, en hún setti Hency þó nokkrar reglur – þar á meðal að fara í háskóla, skrá sig á fyrirsætuskrifstofu og vera með gott vinnusiðferði. 

mbl.is
Linda Sigríður Baldvinsdóttir
Linda Sigríður Baldvinsdóttir
Valgeir Magnússon
Valgeir Magnússon
Ásdís Ósk Valsdóttir
Ásdís Ósk Valsdóttir
Júlía heilsumarkþjálfi
Júlía heilsumarkþjálfi
Hildur Jakobína Gísladóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Árelía Eydís Guðmundsdóttir
Árelía Eydís Guðmundsdóttir

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

félags- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

svarar spurningum um lögfræðileg mál