Rob Kardashian deildi á dögunum árangursmynd á Instagram-síðu sinni. Á árunum 2014–2015 þyngdist Rob um 45 kíló og greindist með sykursýki. Undanfarna mánuði hefur hann unnið að því að ná þessum kílóum af sér og deilt árangri sínum með aðdáendum sínum.
Hann deildi tveimur myndum af sér á Instagram-síðu sinni. Önnur myndin er tekin í júní árið 2015 en hin er ný. Undir myndina skrifaði hann svo. „Á enn langan veg fyrir höndum en er ánægður með árangurinn.“
Erlendir fjölmiðlar telja að jákvæðni Rob sé hægt að rekja til sambands hans við Blac Chyna en hún hefur stutt hann í gegnum þetta. Samkvæmt vefnum Intyle hefur Blac Chyna birt á Snapchat-reikningi sínum myndir af máltíðum Robs sem eru afar næringarmiklar. Fyrr í mánuðinum tilkynnti parið að það ætti von á sínu fyrsta barni saman.
Ekki kemur fram hvað hann er búinn að léttast um mörg kg en eins og sést á myndunum eru þessi 45 kg á undanhaldi.