Óskarsverðlaunaleikkonan Brie Larson er við tökur á nýrri Marvel-mynd, Captein Marvel, en Larson er fyrsta konan til þess að leika aðalhlutverk í kvikmynd um ofurhetjuheim Marvel. Larson hefur verið dugleg að byggja upp vöðva fyrir ofurhetjuhlutverkið.
Stjörnuþjálfarinn Jason Walsh hefur séð um að þjálfa Larson en hann leggur mikla áherslu á styrktarþjálfun og að lyfta lóðum. Í viðtali við Popsugar sagði Walsh að Larson væri að taka miklum framförum.
Walsh er ekki sammála þeirri hugsun að það sé í lagi fyrir konur að vera með aumari efri líkama. Miðað við myndir og myndbönd sem Larson hefur deilt á Instagram er ljóst að Larson hefur farið að ráðum þjálfarans. Walsh segir að leikkonan sé í fyrsta skipti að gera mikið af armbeygjum auk þess sem hún geti hoppað upp á kassa sem ná henni upp að mjöðmum.
Hér má sjá nokkrar af æfingum Larson og þær eru ekki fyrir neina byrjendur enda Larson búin að styrkja sig markvisst í tíu mánuði.