Þjálfari Garner leysir frá skjóðunni

Jennifer Garner er í fanta formi.
Jennifer Garner er í fanta formi. AFP

Simone De La Rue sér um að þjálfa Jennifer Garner en leikkonan, sem er 46 ára, hefur líklega aldrei verið í betra formi. Þjálfarinn upplýsti í viðtali við Us Weekly hvert leyndarmálið á bak við þjálfunaraðferðir hennar væri. 

De La Rue hefur þjálfað Garner í fjögur ár og segir hún Garner einstaklega góðan nemanda; hún leggi sig svo mikið fram að hún viti hreinlega stundum ekki hvor þeirra sé þjálfarinn. 

De La Rue hefur áður rætt um lykilinn að baki vel þjálfuðum handleggjum hennar en venjulega eru þó æfingarnar blanda af styrktarþjálfun og æfingum sem reyna á þolið. Hún byggir æfingar sínar á dansi og eru þolæfingarnar sem hún lætur Garner gera því danshreyfingar eða æfingar á trampólíni. 

Á þessu instagrammyndbandi má sjá þær stöllur gera nokkrar styrtkaræfingar. 

Garner heldur tryggð við þjálfara sinn þegar hún kemst ekki í einkatíma til hennar og notar þá app sem De La Rue er með sem streymir meðal annars tímum hennar. „Hún mælir með appinu þegar við erum ekki saman,“ segir þjálfarinn. „Það er eins og að vera alltaf með mig í vasanum.“

De La Rue virðist þó nær alltaf vera með Garner og þegar leikkonan var í sumarfríi á Havaí í sumar var þjálfarinn með henni.

Jennifer Garner.
Jennifer Garner. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál