Ofurfyrirsætan Cindy Crawford gaf út fræg líkamsræktarmyndbönd á tíunda áratugnum og í byrjun þessarar aldar. Myndböndin er hægt að finna á Youtube. Þótt myndatakan standist ekki endilega tímans tönn þá gera æfingarnar það og upplýsti Crawford í fyrra að hún gerði æfingarnar enn þá.
Í viðtali fyrir ári sagði Crawford í viðtali við The Cut að hún æfði þolið í 20 mínútur að minnsta kosti þrisvar í viku. Þetta getur verið allt frá því að hlaupa á hlaupabretti yfir í það að hoppa á trampólíni eða hlaupa upp og niður stiga. Því næst gerir hún styrktaræfingar í hálftíma. Þessar styrktaræfingar lærði hún fyrir 30 árum og má sjá margar þeirra í myndböndum hennar. Fyrirsætan gengur svo einu sinni í viku á fjöll.
Crawford gerði myndböndin með þjálfaranum Radu Teodorescu. Er hægt að gera æfingarnar heima í stofu. Þrátt fyrir að hún noti létt handlóð einstaka sinnum notar hún oftast sína eigin líkamsþyngd. Hún notar meira að segja bara stól til þess að halda jafnvægi.