Svona grenntist Kylie Jenner

Kylie Jenner segir það hafa tekið sig ár að komast …
Kylie Jenner segir það hafa tekið sig ár að komast aftur í gott form. mbl.is/AFP

Raunveruleikastjarnan og snyrtivöruframleiðandinn, Kylie Jenner, eignaðist sitt fyrsta barn í febrúar í fyrra. Jenner sem er aðeins 21 árs er komin aftur í sitt gamla form en hún var þolinmóð og þakkar betra mataræði fyrir árangurinn. 

Jenner sem bætti á sig 18 kílóum þegar hún gekk með dóttur sína svaraði spurningum fylgjenda sinna á samfélagsmiðlum í vikunni og greindi frá því hvernig hún fór að því að grennast eftir barnsburðinn. Jenner er ekki hrifin af því að hreyfa sig of mikið en tók til í mataræðinu. 

Sagðist hún vanalega borða mjög mikið og hvað sem hún vill, pizzur, pasta og mikið af mjólkurvörum. Hún sagðist hins vegar hafa tekið þetta allt út úr mataræðinu og byrjað að borða hollara. Það virkaði fyrir hana. 

Jenner sagðist hafa heyrt frá mörgum að það tæki heilt ár að koma líkamanum í sitt gamla form eftir barnsburð og þannig var það í hennar tilviki. Það tekur jafn langan tíma að koma sér í form eins og að skapa einstakling segja margir og er Jenner alveg sammála því. 

Kylie Jenner.
Kylie Jenner. mbl.is/AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál