Tekur ekki lengur svindldaga

Kourtney Kardashian leyfir sér eitthvað sætt eftir hádegis- og kvöldmat.
Kourtney Kardashian leyfir sér eitthvað sætt eftir hádegis- og kvöldmat. skjáskot/Instagram

Elsta Kardashian-systirin, Kourtney Kardashian, var lengi vel á ketó-mataræðinu. Þá tók hún einn svindldag í viku og borðaði það sem hana lysti. Núna fylgir hún þó ekki ketó-mataræðinu, en svindar smávegis á mataræðinu sínu daglega. Hún segist borða hollt 80 prósent af deginum, en leyfir sér að svindla hin 20 prósentin.

Í nýlegri færslu á lífstílsvef sínum segist Kardashian fá sér eitthvað smá sætt eftir hádegismatinn og eftir kvöldmatinn. Það getur til dæmis verið tvöföld Oreo-kexkaka, súkkulaði-croissant eða vaffla með sírópi. 

Hún segir að þegar hún var á ketó-mataræðinu svindlaði hún alveg svakalega á svindldeginum, sem bar alltaf upp á sunnudag. Þá fór hún á bændamarkað fyrir hádegi og fékk sér matcha-latte og súkkulaði-croissant. Eftir messu fór hún svo á hlaðborð á veitingastað og fékk sér vöfflur með sírópi.

Kourtney Kardashian er í góðu formi.
Kourtney Kardashian er í góðu formi. skjáskot/Instagram
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál