Var sjálf greind með sjúkdóminn um þrítugt

Þórunn Sveinbjarnardóttir var greind með endómetríósu.
Þórunn Sveinbjarnardóttir var greind með endómetríósu. mbl.is/RAX

Hægt verður að heita á hlaupara Samtaka um endómetríósu í Reykjavíkurmaraþoninu á laugardaginn. Þórunn Sveinbjarnardóttir, fyrrverandi ráðherra, er ein af þeim sem ætlar að hlaupa fyrir Samtök um endómetríósu í Reykjavíkurmaraþoninu en hún þekkir sjúkdóminn af eigin raun. 

„Ástæða þess að ég safna áheitum fyrir Samtök um endómetríósu er tvenns konar: Fyrr á þessu ári lést vinkona mín Elsa Guðmundsdóttir sem hafði glímt við endómetríósu og afleiðingar hennar í marga áratugi. Hún var rúmlega sextug. Ég hleyp í minningu Elsu. Ég hleyp líka fyrir sjálfa mig og allar aðrar konur sem hafa greinst með endómetríósu. Ég er ein af þeim heppnu. Ég greindist upp úr þrítugu og þurfti bara eina stóra aðgerð. Meira fé í rannsóknir og meiri meðvitund um sjúkdóminn innan heilbrigðiskerfisins,” segir Þórunn sem ætlar að ganga rösklega tíu kílómetra í Reykjavíkurmaraþoninu. 

Þórunn Sveinbjarnardóttir ætlar að ganga rösklega í Reykjavíkurmaraþoninu.
Þórunn Sveinbjarnardóttir ætlar að ganga rösklega í Reykjavíkurmaraþoninu. mbl.is/Rax / Ragnar Axelsson
Hér má sjá fólk sem tekur þátt í Reykjavíkurmaraþoninu til …
Hér má sjá fólk sem tekur þátt í Reykjavíkurmaraþoninu til styrktar Samtaka um endómetríósu.
mbl.is
Linda Sigríður Baldvinsdóttir
Linda Sigríður Baldvinsdóttir
Valgeir Magnússon
Valgeir Magnússon
Ásdís Ósk Valsdóttir
Ásdís Ósk Valsdóttir
Júlía heilsumarkþjálfi
Júlía heilsumarkþjálfi
Hildur Jakobína Gísladóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Árelía Eydís Guðmundsdóttir
Árelía Eydís Guðmundsdóttir

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

félags- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

svarar spurningum um lögfræðileg mál