View this post on Instagram#SideBySide from @calvinklein Fall 2019 | #MYCALVINS #IRL ✖🖤✖ @cedricmurac
A post shared by Naomi Campbell (@naomi) on Aug 26, 2019 at 10:02am PDT
Fyrirsætan Naomi Campbell er gríðarlega öflug í ræktinni ef marka má nýjasta myndband hennar á Instagram. Campbell gerir þar framstigsgöngu með bolta fyrir ofan höfuðið.
Þessi æfing er enginn barnaleikur, en mikilvægt er að halda kvið- og bakvöðvum spenntum til að halda líkamanum uppréttum. Síðan er hægt að leika sér með þyngdina á boltanum ef maður vill taka meira á upphandleggsvöðvana og axlirnar. Þessi æfing tekur samt fyrst og fremst á rassinn og lærin og tryggir að þú getur varla sest á klósettið daginn eftir vegna harðsperra.
„Ég þarf að gera mismunandi æfingar og ég er með frábæran þjálfara sem heitir Joe sem ég elska að fara á æfingar með. Ég fer líka á æfingu hér og þar, BXR, og með hópi þjálfara sem vinna hjá Joe sem vinna með mér á ferðalögum til að halda mér við efnið,“ sagði Campbell í viðtali við People.