Raunveruleikastjarnan Teddi Mellencamp hefur ekki alltaf verið í eins góðu formi og í dag. Real Housewives of Beverly Hills-stjarnan segist hafa þyngst mikið á tvítugsaldrinum en hætti loks á kúrum og breytti um lífsstíl fyrir nokkrum árum.
Mellencamp er dugleg að deila fyrir-og-eftir-myndum af sér á Instagram. Við nýjustu samsettu myndina segir hún þó að fyrir-og-eftir-myndir segi ekki allan sannleikann. Hún segir þær sýna bara eina hlið á heilsu og vellíðan fólks. Mellancamp segir að breyttur lífsstíll og heilsa snúist um mun meira en þyngdartap. Sjálf fann hún meira sjálfsöryggi, uppgötvaði leiðir til þess að glíma við kvíða og varð hamingjusamari.
Mellencamp flutti 17 ára til Los Angeles til þess að slá í gegn eins og svo margir. Eftir heilt ár fékk hún loks umboðsmann og eftir prufu var hringt til baka. Hún fékk ekki starfið en var sagt að grenna sig um tíu kíló. Raunveruleikastjarnan gerði það ekki heldur hélt áfram að þyngjast en hún segist hafa þyngst um rúm 20 kíló bara fyrsta hálfa árið sitt í Los Angeles.
Eftir að hún eignaðist son sinn sem er nú fimm ára gamall var hún í kringum þriggja stafa töluna. Hún náði aðeins örfáum kílóum af sér eftir fæðinguna. Það var svo fyrir fjórum árum að hún hætti öllum megrunarkúrum og breytti um lífsstíl eins og hún segir á Instagram.