Búinn á því eftir 12 mínútna æfingu

Tom Hanks og Rita Wilson veiktust af veirunni og vou …
Tom Hanks og Rita Wilson veiktust af veirunni og vou með mjög mismunandi einkenni. AFP

Leikarinn Tom Hanks er enn að ná fullri heilsu eftir að hafa smitast af kórónuveirunni. Hann hefur verið að vinna upp þrekið á síðustu vikum og tekið stuttar æfingar. Meðan hann var að ná sér varð hann búinn á því eftir aðeins 12 mínútuna æfingu.

Hanks og eiginkona hans Rita Wilson smituðust bæði af veirunni snemma í marsmánuði. Þau eru ekki lengur veik en það tekur á að ná fullri heilsu aftur. 

„Rita varð mun veikari en ég. Hún var með miklu hærri hita. Hún missti allt lyktar- og bragðskyn. Ég var með slæma beinverki og var mjög þreyttur og þannig eru áhrifin sem veiran hafði á okkur,“ sagði Hanks í útvarpsviðtali á dögunum.

Hann bætti við að hann hefði reynt að halda sér í formi á meðan hann jafnaði sig á veirunni og gert 30 mínútna teygjuæfingar og „æfingar fyrir gamla karla“ en ekki haft þol til að klára æfinguna. „Ég var búinn á því eftir 12 mínútur,“ sagði Hanks.

Hanks reyndi að taka æfingar á meðan hann var að …
Hanks reyndi að taka æfingar á meðan hann var að jafna sig á veirunni en entist bara í 12 mínútur. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Guðrún Kristjánsdóttir
Guðrún Kristjánsdóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Júlía heilsumarkþjálfi
Júlía heilsumarkþjálfi

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál