Gæti ekki horft í spegil ef ég væri að nota ólögleg lyf

Í viðtali við Sölva Tryggvason í nýju podcasti Sölva segir Annie Mist að það geri lítið úr allri þeirri vinnu sem hún og annað heimsklassa fólk í íþróttum leggi á sig að tala um að nær allir séu að notast við ólögleg efni.

Sölvi Tryggvason er byrjaður með hlaðvarp, Podkast með Sölva Tryggva.
Sölvi Tryggvason er byrjaður með hlaðvarp, Podkast með Sölva Tryggva.

„Ég er opinber persóna og fólk má vera með sínar skoðanir á mér, en það sem mér finnst leiðinlegast af öllu er þegar fólk heldur að maður hafi verið að nota ólögleg efni. Það sem ég er svo hrædd um er að það valdi því að ungir krakkar eða þeir sem vilja ná árangri í Crossfit þurfi að nota efni,” segir Annie Mist í viðtalinu við Sölva. Hún er mjög afdráttarlaus í umræðunni um ólögleg efni og þolir ekki viðkvæmnina í kringum hana.

Hún fer í blóðprufur tvisvar til þrisvar sinnum á ári og vilja deila þessum blóðprufum með fólki þegar ferlinum líkur. Það sé mjög mikið verið að lyfjaprófa og þeir sem séu teknir noti það sem réttlætingu að reyna að halda því fram að allir hinir séu að því líka. Sjálfri finnst henni það slök réttlæting og tóm þvæla og skilur ekki hvernig fólk getur lifað með sjálfu sér að komast á verðlaunapalla vitandi að það hafi notað ólöglegar aðferðir.

„Ég vil trúa því að crossfit sé tiltölulega hrein íþrótt,” segir Annie Mist og bætir við að annars væri hálf tilgangslaust að vera í þessu fyrir þá sem ekki nota lyf. Varðandi umræðuna um að réttast væri bara að leyfa íþróttamönnum að gera allt sem til þarf til að bæta sig, þar með talið að notast við lyf hefur hún mjög sterkar skoðanir.

„Mér finnst það ein glataðasta tillaga sem ég hef heyrt,” segir Annie ákveðin.

Í viðtalinu ræða Annie og Sölvi um fórnirnar við að helga sig algjörlega íþróttinni, stjórnmál, trúarbrögð, sigrana, lægðirnar og margt margt fleira. 

Þátturinn er einnig aðgengilegur á Spotify. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál