Björn Leifsson tók 225 kíló á kjötinu

Björn Leifsson tekur 225 kíló í réttstöðulyftu.
Björn Leifsson tekur 225 kíló í réttstöðulyftu. Ljósmynd/Instagram

Björn Leifsson eigandi World Class lá greinilega ekki uppi í sófa og borðaði sælgæti þegar líkamsræktarstöðvar voru lokaðar vegna veirunnar. Hann sýndi það rétt í þessu að hann er nautsterkur og hefur nú deilt myndbandi af sjálfum sér taka 225 kíló á kjötinu í réttstöðulyftu. 

Það að taka 225 kíló þykir gott fyrir manneskju á þessum aldri en Björn er fæddur 1959 og því 62 ára. Það að taka það á kjötinu þýðir að hann var ekki í lyftingabúnaði sem getur aukið styrk. Hann lyfti þessari þyngd með kraftlyftingabelti og á sokkaleistunum. 

Hvað Björn tekur í bekk er þó ekki vitað en það sem alþjóð veit eftir síðustu viku er að Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra tekur 120 kíló í bekk á kjötinu. Það þykir gott fyrir hefðbundinn skrifstofumann að geta lyft slíkri þyngd.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Guðrún Kristjánsdóttir
Guðrún Kristjánsdóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Júlía heilsumarkþjálfi
Júlía heilsumarkþjálfi

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál