Sigtryggur Magnason skáld og Svandís Dóra Einarsdóttir leikkona hafa sett íbúð sína í Vesturbænum á sölu. Svandís Dóra fer með eitt af aðalhlutverkunum í myndinni um Harry og Heimi og svo leikur hún einnig í verkinu Útundan sem frumsýnt var í Tjarnarbíói á fimmtudaginn var.
Íbúðin stendur við Brávallagötu í Reykjavík í húsi sem byggt var 1943. Um er að ræða 140 fm eign en íbúðin skiptist í 88,7 fm þriggja herbergja íbúð, með parketi á gólfi, tveimur parketlögðum svefnherbergjum eldhúsi stofu og flísalögðu baðherbergi með innréttingu, baðkari og tengi fyrir þvottavél.
Á jarðhæð er 12 fm herbergi, parketlagt með glugga, nýtt sem tómstundarými, á efstu hæð, beint fyrir ofan íbúðina er 29,5 fm aukaíbúð.
HÉR er hægt að skoða íbúðina nánar.