Auðunn Blöndal hefur sett glæsilega íbúð sína við Súlunes á Arnarnesinu á sölu. Íbúðin er 167 fm að stærð og á besta stað í hverfinu.
Íbúðin er á neðri hæð í glæsilegu einbýli og hefur hún oft komið fyrir í sjónvarpsþáttum Auðuns. Snapchat-vinir hans þekkja sig líka vel. Nú er hinsvegar komið að kveðjustund og hefur hann sett íbúðina á sölu.