Málaðu eins og vindurinn

Litaðir veggir hafa sjaldan verið meira móðins eða varla síðan á áttuna áratugnum þegar heilu veggirnir voru ýmist veggfóðraðir eða málaðir í brúnum tónum. Eftir það tók við langt tímabil hvítra veggja en núna erum við aftur að verða hressari. En hvernig eigum við að mála þegar við málum í lit? 

Þegar litir eru valdir á heimilið skiptir máli að velja ekki of marga liti, helst bara þrjá í heildina ef um heila íbúð er að ræða. Það skiptir máli að litirnir séu með sama grunntón og passi vel við húsgögnin.

Upp á síðkastið hefur blár litur verið ákaflega vinsæll en núna eru gráir og grænir tónar að verða vinsælli ásamt brúnum, beige-lituðum og pastel-bleikum. Mjúkur gulur og vínrauður eru líka að koma sterkir inn. Þeir eru þó ekki notaðir saman. Þú verður að velja annaðhvort.

Það skiptir máli að mála þannig að liturinn sé látlaus grunnur. Málningin á ekki á æpa á okkur og við eigum ekki að fá innilokunarkennd. Ef þú færð innilokunarkennd þá er liturinn of dökkur. Ef það er hátt til lofts og vítt til veggja þola rými betur dekkri liti en ef um mjög smá rými er að ræða. Fólk er oft að velta fyrir sér hvort það eigi að hafa rönd meðfram loftinu eða ekki. Ef þú vilt mála í anda nútímafólks þá málar þú loftið og veggina í sama lit. Nú ef engin leið er að mála loftið í sama lit á ekki að vera lína meðfram loftinu. Það virðist hærra til lofts ef það er engin lína.

Blæbrigði skipta máli þegar við veljum liti. Hver hefur ekki lent í því að vera búin/n að kaupa 10 lítra af málningu og tónninn er með aðeins of bláum undirtón eða eitthvað slíkt. Þess vegna skiptir máli að kaupa litlar prufur og prófa sig áfram þegar litur er valinn. Ekki bara apa upp eftir næsta manni.

Og ef þú vilt vera sjúklega mikið með allt á hreinu þá málar þú gólflistana í sama lit og veggurinn þannig að það skapist tær og falleg heildarmynd.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Guðrún Kristjánsdóttir
Guðrún Kristjánsdóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Júlía heilsumarkþjálfi
Júlía heilsumarkþjálfi

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál