Diane von Fürstenberg hannar ekki bara dásamleg föt heldur líka ævintýraleg jólatré. Fatahönnuðurinn fékk það verkefni að hanna jólatré fyrir anddyri hótelsins Claridge's í Mayfair-hverfinu í London.
Hótelið er þekkt fyrir að fá frægt fólk til þess að hann jólatré fyrir sig. Í fyrra var það Karl Lagerfeld sem hannaði jólatré á hvolfi fyrir hótelið. Eins og Smartland greindi frá
Frétt af mbl.is: Jólatré á hvolfi vinsæl
Jólatré von Fürstenberg sneri ekki öfugt en hún fór ekki hefðbundnar leiðir þegar hún hannaði tréð í ár sem fékk heitið Tré ástarinnar. Ekki var þó um að ræða hefðbundið grenitré og jólaliti heldur minnti blátt og silfrað tréð á notalega vetrarstemmningu og heitt súkkulaði.