Einn frægasti arkitekt í heimi, Frank Gehry, flutti nýverið í nýtt hús sem hann hannaði ásamt syni sínum. Húsið sem Gehry bjó í áður hannaði hann upphaflega árið 1978 en nú er arkitektinn orðinn níræður og vildi hús sem hentaði betur. Veitti hann Architectural Digest innlit í húsið.
Þó svo að Gehry hafi viljað hús sem hentaði honum betur er ekki um neitt venjulegt hús að ræða frekar en fyrri daginn. Gehry er þekktur fyrir að fara óvenjulegar leiðir í sköpun sinni og minna hús hans oftar á skúlptúra en hefðbundnar byggingar. Ein af hans frægustu byggingum er Guggenheim-safnið sem hann hannaði á Bilboa á Spáni.
Gera má ráð fyrir að nýja húsið sem er í Santa Monica í Kaliforníu eigi ekki eftir að vekja minni athygli en gamla húsið sem er í borginni.