Við Hjálmholt í Reykjavík stendur glæsileg 203,1 fm íbúð á besta stað í bænum. Hjálmholt er ein af þessum földu götum Reykjavíkur sem er svo miðsvæðis að fólk sem býr þar getur nánast verið bíllaust.
Þessi fallega íbúð stendur í húsi sem byggt var 1964 og alveg í takt við byggingarstíl þess tíma. Í eldhúsinu er falleg eikar-innrétting með gráum yrjóttum steini. Gott skipulag er á íbúðinni og pláss fyrir það helst sem nútímafólk vill hafa í kringum sig.
Stórir gluggar eru á íbúðinni og líka yfirbyggðar svalir þannig að rýmið nýtist betur til daglegra nota.