Svona gerir þú heimili þitt framúrskarandi

Innanhússhönnuðurinn Kelly Wearstler kennir leiðirnar til þess að gera heimilið …
Innanhússhönnuðurinn Kelly Wearstler kennir leiðirnar til þess að gera heimilið draumi líkast. Skjáskot/Instagram

Ef þig hefur alltaf dreymt um að eiga heimili sem endurspeglar persónuleika þinn. Þar sem lýsingin á heimilinu lætur gestina líta vel út og litir á veggjunum eru litir sem fara þér vel þá er eitt námskeið sem þú ættir að skoða í dag. Námskeiðið er í boði hjá MasterClass og er kennarinn enginn annar en hönnuður stjarnanna, Kelly Wearstler. 

Á námskeiðinu er sýnt á einfaldan hátt hvernig hægt er að gera heimilið fallegt og í raun tekin í burtu öll dulúð sem fylgir því að búa til einstakt heimili. 

Eftirfarandi atriði eru í anda Wearstler:

  • Heimilið þitt endurspeglar hver þú ert.
  • Dreifðu uppáhaldsflíkunum þínum á eitt svæði og finndu út hvaða litur er í uppáhaldi hjá þér. 
  • Liturinn sem þú elskar að klæðast er litur sem þér mun líða vel í. 
  • Settu öll efni sem þig langar að nota á einn stað og sjáðu hvernig þau fara saman. Steininn sem þú notar í borðplöntuna, efni úr sófanum, liturinn á veggina og þar fram eftir götunum. 
  • Ekki vera hræddur/hrædd við liti. 
  • Heimili án lita er eins og líf án ástar. 
  • Litir framkalla tilfinningar. Gulur gerir sem dæmi fólk hamingjusamt.
  • Finndu leiðir til að stækka rýmin í húsinu þínu. Gler á kaffiborði og upphækkaðir hlutir stækka umhverfið. 
  • Vertu forvitinn/forvitin. 
  • Taktu áhættu. Því þannig býrðu til fallegt umhverfi.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Guðrún Kristjánsdóttir
Guðrún Kristjánsdóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Júlía heilsumarkþjálfi
Júlía heilsumarkþjálfi

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál