Þetta er leyndarmálið á bak við fallegan garð

Árni Þór og Ásdís Alda búa í glæsilegu húsi á …
Árni Þór og Ásdís Alda búa í glæsilegu húsi á Ægissíðunni, með einstökum garði. mbl.is/Sigurður Ragnarsson

Ásdís Alda Þorsteinsdóttir leikskólakennari er mikil blómakoma sem býr í stóru einbýlishúsi við Ægisíðuna með eiginmanni sínum Árna Þór Bjarnasyni. Þau hafa búið í húsinu síðustu tuttugu árin og er það hannað af Sigvalda Thordarssyni. Ásdís segir að hún sé einstaklega ánægð með blómabeðið sem Sigvaldi hannaði í handriðinu við aðalinnganginn. Það sé mjög sérstakt og gefur húsinu skemmtilegan svip.

mbl.is

Hvað getur þú sagt um garðinn ykkar? 

„Fólk á ekki von á að hægt sé að rækta svo mikið af fallegum blómum og rósum svona nálægt sjónum en það er hægt með mikilli vinnu og natni. Garðurinn er skjólgóður og trén taka af allan vind, hann lokast líka alveg af þegar trén laufgast. Við pössum að taka ofan af trjánum á hverju ári svo að garðurinn verði ekki of skuggsæll. Ég hef blóm allstaðar sem sólin nær að skína. Ég elska að setja blóm í allavega potta og blanda saman sumarblómategundum. Ég set þá í tröppur og hengi upp, og helst allstaðar sem sól skín.

Í fyrstu var það bara ég sem hafði þennan mikla áhuga á blómum og garðrækt en svo fékk Árni maðurinn minn áhuga líka og núna við erum í þessu saman.“

Hvert rekur þú þennan áhuga þinn á garðrækt?

„Ég er alin upp í margverðlaunuðum blómagarði á suðurbrekkunni á Akureyri. Mamma og pabbi áttu mjög fallegan garð sem þau voru öllum stundum í. Mamma sáði fyrir öllum sínum blómum og hún var með gróðurhús sem var fullt af blómstrandi blómum og rósum. Við systurnar fimm fengum blómaáhugann frá mömmu og við elskum blóm og alla ræktun.

Ég lærði af mömmu að vökva blómin mjög mikið og oft, ég nota næringu þegar ég vökva og mér finnst mikið atriði að hafa stóra potta og mikið að góðri mold í þeim.“

Hvaða blóm og tré ertu með í garðinum?

„Það eru mörg stór og gömul tré í garðinum og sérstaklega eru tveir hlynir fallegir annar er í bakgarðinum og hinn út við götu, þeir eru báðir orðnir yfir 60 ára gamlir, þeir eru mjög plássfrekir en mjög fallegir. Ég hef keypt mörg falleg tré sem verða ekki hávaxin eins og úlfareyni, hegg, kirsuberjatré, runnarósir og runna sem fá fallega haustliti.

Ég rækta eitthvað af blómunum mínum sjálf og sái og forrækta inni. Dalíur eru mín uppáhaldsblóm, ég set laukana niður í mars og forrækta þær í stórum pottum fram í júní þá set ég Dalíurnar út á pall. þær verða oft mjög háar og blómstra vel frá byrjum júní fram í september.

mbl.is

Ég er með mikið af fjölærum blómum í stóru beði og á milli trjánna eru burknar og hostur sem eru skuggþolnar. Ég er líka með mikið af fallegum runnum. Ég er með ágræddar rósir í sér beði þær blómstra oft vel fram í nóvember.

Garðurinn er mjög fallegur strax í apríl, þá er hann ein breiða af bláum vetrargosum, fólk sem gengur framhjá á ekki orð yfir þessum fallegu vorlaukum. Svo taka vorlaukarnir við og í byrjum júní fara sumarblómin og fjölæru blómin að blómstra.“

Hvaða ráð áttu fyrir þá sem eiga landskika í kringum húsin sín og langar að fara af stað með að rækta eitthvað áhugavert þar?

„Ég ráðlegg fólki að búa til skjól með runnum eða smíða skjólveggi. Kaupa sumarblóm og búa til beð eða hafa í pottum, til að fá lit í garðinn. Það er svo skemmtilegt.“

Ræktarðu grænmeti í garðinum þínum líka?

„Mjög lítið, ég er með spínat og kál í pottum sem ég sái allt sumarið og borða jafnóðum.“  

Hvað eyðir þú mörgum stundum á viku í garðinum?

„Við hjónin erum mjög mikið í garðinum frá apríl fram í september. Það er mikil vinna en ótrúlega skemmtileg og gefur okkur mikið. Við fjölskyldan erum mjög mikið í garðinum og við borðum alltaf úti þegar veður er gott. Þegar kólnar kveikjum við í arninum og höfum kósí. Við erum með lýsingu í garðinum sem er skemmtileg þegar fer að rökkva í ágúst, ég set líka upp seríur og kertaluktir.“

mbl.is

Er garðrækt að þínu mati góð fyrir börnin okkar líka?

„Já, börn vilja leika sér í grasi og sjá hvernig blómin vaxa og fá að vökva og halda blómum fallegum. Einnig að taka þátt í að sjá fyrir grænmeti og sjá það vaxa og fá að borða það beint úr garðinum. Börn vilja klifra í trjám, það gefur þeim mikið að finna hvað þau þroskast og verða sterkari og komast hærra upp í trén. Moltugerð er líka þroskandi fyrir börn við erum með moltutunnur bæði hér heima og í leikskólanum. Það kennir börnunum hvernig við endurvinnum matarafganga og garðaúrgang og notum svo sem áburð í potta og beð.“

Hvernig er að vinna með börnum?

„Ég er leikskólakennari og deildastjóri og ég hef unnið með börnum í um 40 ár. Það er mjög gaman að vinna með börnum gefandi og skemmtilegt og alltaf mikið að gera. Ég hef reynt að koma blómaáhuganum að hjá börnunum og sái fyrir sólblómum með þeim sem þau taka með sér heim.“

Sumir segja það að vinna í garðinum, líkt og að fara í góðan sálfræðitíma. Ertu sammála því?

„Ég finn mikla ró og gleði að vera úti og róta í moldinni og vera í grasinu og leika við börnin. Það er alveg sérstök gleði sem fylgir því að sjá gróðurinn taka við sér á vorin og sjá rósirnar og blómin blómstra. Það er alveg dásamlegt. Það er líka sérstök gleði að vera með gosbrunn í garðinum og horfa á vatnið og hlusta á vatnsniðinn.“

mbl.is

Hvernig undirbýrðu garðinn fyrir sumarið?

„Ég reyni að ná skriðsóleynni, mosanum og öðrum gróðri í burtu sem ég vil ekki hafa í garðinum. Við berum á grasið fyrst Turbo kalk og svo Blákorn nokkrum dögum síðar. Ég ber áburð líka á rósirnar og á runnana. Ég set moltu og áburð í beðin á vorin og stundum hænsnaskít.  Ég ber á grasið nokkrum sinnum yfir sumarið. Klippi runna, tré og rósir.“

En fyrir veturinn?

„Fyrir veturinn setur Árni steinull við rótarhálsinn á ágræddu rósunum og svo ramma utanum rósabeðið, hann klæðir svo rammann með striga þannig að rósirnar og Lyngrósin eru vel varðar fyrir veðrum og vindi frá nóvember fram í maí.“

Hvað keyptir þú þér síðast inn í garðinn?

„Ég er búin að kaupa mikið af sumarblómum og nokkra nýja blómapotta í vor.“

Voru börnin þín mikið með þér í garðinum hér á árum áður?

„Já börnin okkar fjögur hafa líka mikinn blómaáhuga, elsti sonur okkar á mjög fallegan garð í Dallas þar sem hann ræktar ótrúlega margt skemmtileg sem gaman væri að geta ræktað hér heima.“

Hvaða garðhúsgögn ertu með?

„Gamalt borð sem ég set dúk á og Ikea stóla.“

Hvað með garðáhöld?

„Við eigum öll garðáhöld sem við þurfum á að halda, sláttarvél, grasklippur, runnaklippur, trjáklippur,  smáverkfæri, skóflur og annað sem þarf að nota.“

mbl.is
mbl.is
mbl.is
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál