Draumasólpallur við 46 fm krúttbústað í Grímsnesi

Við bústaðinn er sannkallaður draumasólpallur með heitum potti og fallegum …
Við bústaðinn er sannkallaður draumasólpallur með heitum potti og fallegum útihúsgögnum. Samsett mynd

Við Skógarholt í Grímsnesinu er til sölu 46 fm sumarhús sem gleður augað jafnt að innan sem utan. Húsið var reist árið 1989 og stendur á gróðursælli 5.000 fm eignarlóð. Við húsið eru tveir guðdómlegir sólpallar, samtals um 60 fm, sem setja án efa punktinn yfir i-ið. 

Sumarhúsið hefur verið innréttað á afar sjarmerandi máta. Í eldhúsinu er ljósgrá eldhúsinnrétting með opnum hillum í stað efri skápa. Fyrir ofan borðstofuborðið hanga falleg bastljós sem skapa notalega stemningu í rýminu.

Úr alrýminu er útgengt á sannkallaðan draumasólpall til suðurs sem er lokaður að hluta með skjólveggjum. Þar er flottur heitur pottur og sérstaklega kósí aðstaða, en pallurinn hefur verið skreyttur með fallegum útihúsgögnum, eldstæði, kertum og útiseríu. 

Fyrir framan bústaðinn er einnig fallegur sólpallur með aðstöðu til að borða, notalegum hengistól og plöntum. Í húsinu eru tvö svefnherbergi auk svefnlofts og eitt baðherbergi. 

Sjá á fasteignavef mbl.is: Skógarholt 1

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál